"Somebody let me out please?! Come on, I’m cold... and covered in marinara sauce!"
Það var sem sagt þannig að, næstum frá fyrsta vinnudeginum okkar í álverinu, höfðum við Fjóla ætlað okkur að fara upp á súrálsturnana, en það hentaði aldrei.
(Það er nefnilega ekkert sérstaklega vel liðið (held meira að segja að það sé bannað ?) að fólk sé að fara þarna upp, og því urðum við að gera það á helgar-, nætur- eða kvöldvakt því á hinum vöktunum er allskonar fólk á ferli þarna...kannski um 500-600 manns. En á fyrr nefndum vöktum eru kannski 50-60 manns á svæðinu).
Svo á næstseinustu vaktinni minni (sem var á sunnudegi) ákváðum við að drífa okkur. Þetta vorum við Fjóla og restin af nýliðunum (Bjössi, Kjartan og Ragga). Svo fengum við einn vanan starfsmann með okkur.
(Var að muna ástæðuna fyrir því að ég skrifaði þessa sögu ekki með hinu blogginu... en hún er að aðdragandinn að þessu skemmtilega er fokk langur, og ég þarf að útskýra sjúklega margt, sem leiðir líklega til þess að þetta skemmtilega verður ekkert skemmtilegt að lokum)
Okei, þannig að við leggjum að stað að súrálsturnunum. Stiginn sem við þurfum að fara upp var (fyrir utan að vera sjúklega langur) var gerður úr svona grindum og þær þaktar súráli.
(Þið sem vitið ekki hvað súrál er, þá getið þið bara ímyndað ykkur ógeðslega fínan sand eða heldur gróft og þungt hveiti...
"Súrál er efnasamband áls og súrefnis sem jafnframt nefnist áloxíð. Efnaformúla þess er Al2O3 og vísar til þess að það samanstendur af álfrumeindum (Al) og súrefnisfrumeindum (O) í hlutföllunum tveir á móti þremur. Súrál er hvítt, púðurkennt efni og aðalhráefnið í lokaframleiðlu á áli.")
Og þar sem hver trappa var þakin súráli þá þyrlaðist það niður þegar maður steig á tröppuna....
Við Fjóla tókum þá upp á því að hlaupa upp stigann (og stíga vel niður í hverju skrefi) þannig að krakkarnir fyrir neðan voru útataðir í súráli þegar þeir komu upp.
Það væri óskandi að sagan endaði þarna, en svo er ekki. Við Fjóla vissum að þau myndu hefna sín á leiðinni niður þannig að við ætluðum að fara niður þegar enginn sæi.
En það gekk ekki eftir, það var einhver sem sá okkur og var ekki lengi að kalla á hina.
Málið er að þau létu sér ekkert nægja að stappa, eins og við Fjóla höfðum gert, heldur tóku þau heilu hrúgurnar af súráli og hentu niður.
Niðurstaðan var sú að á tímabili sáum við ekki neitt. Allt var hvítt. Okkur leið eins og í hryllingsmynd. Og það versta var að við vorum í hláturskasti, sem gerði hvorki að hlaupa né að anda eitthvað auðveldara.
Þegar við komum loksins niður og út þá litum við nokkurn veginn svona út:

Okkur hafði reyndar ekki vaxið skegg... en ef það hefði gerst þá hefðum við lituð svona út, því súrálið var allstaðar!
*
It's a beautiful day. I feell good, I feel right.
Ég held ég sé aðeins of auðkeypt (ef það er orð)... um leið og það kemur pínu sólskin þá held ég að sumarið sé komið.
Um daginn var ískyggilega gott veður og ég fór út í bílskúr og sótti hjólið mitt, þreif það og pumpaði í dekkin. Þreif svo bílinn og spúlaði stéttina.
Um kvöldið var farið að snjóa og bílaplanið var orðið að skautasvelli.
Svo lét sólin sjá sig aftur í gær og ég fór í sumarkjól og læti.
Auðvitað snjóar svo daginn eftir.
Ég get ekki beeeeðið eftir sumrinu!
Þegar ég vakna á morgana þá vona ég að ég hafi óvart sofið í tvo mánuði og það sé kominn maí (og að ég sé búin í prófunum).
Annars er ég búin að fá vinnu í álverinu í sumar og líka Fjóla og Birgir
Lífið er sweet.

Við Gunnar í Svíþjóð síðasta sumar.

C'est la vie?
"I'm tired of having a relationship with your answering machine"
Er ég ein um að fíla þetta lag?
*
"Cheese - It's milk... that you chew Crackers - Because your cheese needs a buddy."


"Easy-read lesgrindin auðveldar lesturinn og gerir hann ánægjulegri - léttir álag handa við að halda bók opinni." (man ekki síðuna)
*
...Ég elska kjánalegar markaðssetningar.
Hér eru hins vegar markaðssetningar sem mér finnst sniðugar:
.jpg)
.jpg)
Sniðugt.
Svo þessi sem ég sá um daginn:

Auglýsing fyrir notaða bíla frá BMW: "Even though you're not the first owner, you can still have a great driving experience".
Ég tel mig ekki vera feminista, en þessi gella lítur út fyrir að vera enn í grunnskóla... Ef þeir hefðu notað eldri píu þá hefði ég samþykkt þetta, því hugmyndin er góð.
*
"My wallet's too small for my fifties, and my diamond shoes are too tight"
Mig vantaði bókamerki og það eina sem ég fann var 5000 kr. seðill.
Er það merki um að maður eigi of mikið af peningum?...
Haha.
(Já, þið sáuð rétt, friends-quotin eru byrjuð aftur)
*
Ég hlakka ekki svo til, ég hlakka ekki svo til (8)....
Eftir áramót, á seinstu önninni minni í menntaskóla, tek ég 20 einingar.
Þessar einingar eru:
Enska 603
Saga 303
Náttúruvísindi 123
Menningafræði 203
Landafræði 103
Lífsleikni 121
Lögfræði 103
Íþróttir 411
Þetta er klikkun!
Eins gott að ég fékk langt jólafrí (8. des - 4. jan.)
*
...Hærra en Hallgrímskirkjuturn?
Mömmu og pabba var boðið að fara í jólatrésleiðangur við Úlfljótsvatn um daginn.
Og þau fundu víst eitthvað voða fínt tré.
Ég fann hins vegar hið fullkomna tré í Skorradal síðasta sumar:

Veit bara ekki alveg hvort það kemst fyrir inn í stofu...
Typpa-hvað?
-Fyrir litla typpalinga
-Koma í veg fyrir óvæntan glaðning á skiptiborðinu
-Skyldueign fyrir alla strákaforeldra
-100% bómull
-5 typpahattar í hverjum pakka
-Fjölnota og þvottekta
-Margir litir / mynstur
-Fáanlegt í sellófanpakka eða þvottekta poka úr taui
Hærra en Hallgrímskirkjuturn?

Upp á þessi síló hef ég komið (súrálsturnana).
Veit ekki hversu vel það skilar sér á þessari mynd, en þau eru alveg fokk há!
(tékkið t.d. á krönunum miðjulega til hægri, eða á gámunum)
Það er alveg nokkuð skemmtileg saga sem fylgir, eeeen ég nenni ekki að segja hana :)
Geri það kannski eftir próf.
Verið sæl.

Ég elska próflestur
Hér er frábær uppskrift af jólaávaxtaköku.
1 bolli vatn
1 bolli sykur
4 stór egg
2 bollar þurrkaðir ávextir
1 teskeið bökunarsódi
1 teskeið salt
1 bolli púðursykur
1 bolli sítrónusafi
1 bolli hnetur
1 FULL flaska af Grand
Smakkið Grandið til að vera viss um að það sé ekki skemmt.
Takið stóra skál.
Athugið Grandið aftur til að vera alveg viss um að það sé ekki skemmt.
Hellið í einn bolla og drekkið. Endurtakið.
Kveikið á hrærivélinni, hrærið 1 bolla af smjöri í stóra, mjúka skál.
Bætið 1 teskeið útí og hrærið aftur.
Athugið hvort Grandið sé nokkuð farið að skemmast, fáið ykkur annan bolla.
Slökkvið á hrærivélinni.
Brjótið tvo fóta og bætið í skálina og hendið bollanum með þurrkuðu ávöxtunum út í. Hrærið á kveikivélinni.
Ef þurrkuðu ávextirnir festast við hrærararrarna losið þá þá af með rúfskjárni.
Bragðið á Grandinu til að athuga brestgratið.
Næst, sigtið 2 bolla af salti. Eða einhverju. Hverjum er ekki sama.
Athugið Grandið.
Sigtið sítrónusafann og teygið hneturnar.
Bætið einu borði af sykri eða eitthvað. Hvað sem þú finnur nálægt.
Smyrjið ofninn.
Stillið kökuformið á 250°.
Gleymið ekki að hræra í stillaranum.
Hendið skálinni út um gluggann.
Athugið Grandið aftur.
Farið að sofa.
